Með RefectoCil augabrúnahúðunarsettinu, getur þú mótað augabrúnirnar þínar til að haldast lengi eins og þú óskar. Það tekur einungis 10 mínútur að móta hárin í þannig að þau haldist lengi – fullkomin leið til að fylla í eyður og temja þrjósk hár! Formúlan inniheldur keratín sem styrkir hárin. Fyrir bestu útkomuna er ráðlagt að lita augabrúnirnar eftir meðferðina eins og hentar þínum persónulega stíl. Það tekur einungis 3 mínútur að bera RefectoCil augabrúnalitinn á eftir að hafa húðað augabrúnirnar!
Hreinsið augabrúnirnar með RefectoCil Micellar augnfarðahreinsinum. Notið RefectoCil saltlausnina til þess að fjarlægja yfirborðsvirku efnin og leifar af húðolíu. Húðin og hárin verða að vera þurr fyrir notkun.
Notið gúmmíburstann til að bursta augabrúnirnar og kemba þær í það form sem óskast.
Berið Lash & Brow Perm (1) á alla augabrúnina. Byrjið við upphaf augabrúnarinnar og haldið áfram í þá átt sem brúnin var burstuð.
Forðist eins og hægt er að bera á húð í kring um augabrúnirnar og þurrkið með bómull.
Fjarlægið Lash & Brow Perm (1) með þurrum bómullarhnoðra eða bómullarpúða.
Berið Neutralizer (2) á með bursta. Endurtakið skref 3 við áburðinn. Áburðartími: 4 mínútur.
Fjarlægið Neutralizer (2) með rökum bómullarpúða. Notið síðan RefectoCil saltlausnina til að hreinsa augabrúnasvæðið og fjarlægja allar leifar.
Litið augabrúnirnar með völdum RefectoCil augnbrúna- og augnháralit. Áburðartími er einungis 3 mínútur eftir augnbrúnalyftingu!
Eftir að liturinn hefur verið fjarlægður, notið gúmmíburstann til að móta augabrúnirnar. Ef þörf krefur, má nota augnháraskæri til þess að klippa hár sem eru of löng.
LASH & BROW PERM: Aqua (Water, Eau), Thiolactic Acid, Cetearyl Alcohol, Ammonia, Ammonium Bicarbonate, Hydrolyzed Keratin, Ceteareth-20, Parfum (Fragrance), Sodium Cetearyl Sulfate, Cysteine HCl, Sodium Laureth Sulfate, Sodium Benzoate, CI 77491 (Iron Oxides) NEUTRALIZER: Aqua (Water, Eau), Cetearyl Alcohol, Hydrogen Peroxide, Sodium Laureth Sulfate, Citric Acid, Sodium Phosphate, Parfum (Fragrance)
Svipaðar vörur