Sérstaklega mælt með til að lita augnhár og augabrúnir viðskiptavina með svart eða dökkbrúnt hár – gefur einstaklega fallegt svart útlit!
- Biksvört augnhár og augabrúnir
- Hægt að blanda við alla 8 RefectoCil litina
- Kámast ekki og þolir vatn
- Endist í 6 vikur
SKREF 1: Undirbúningur
- Fjarlægðu linsur.
- Hreinsaðu svæðið í kringum augun með olíulausa og augnhárastyrkjandi farðahreinsinum RefectoCil Micellar Eye Make-up Remover.
- Notaðu RefectoCil saltvatnslausnina til að fjarlægja leifar og tryggja hámarks árangur.
- Notaðu RefectoCil sílíkonhlífar (Silicone Pads) eða húðverndunarkremið (Skin Protection Cream) og augnhlífabréf (Eye Protection Papers) samkvæmt viðkomandi leiðbeiningum.
SKREF 2: Blandaðu og berðu á
- Strax áður en þú litar, blandaðu þá 2 cm af lit og 10 dropum af RefectoCil vökvafesti (oxidant liquid) eða 15-20 dropum af RefectoCil kremfesti (oxidant cream) í rjómakennt krem.
- Berðu þetta síðan á augabrúnirnar og augnhárin.
SKREF 3: Tíminn sem liturinn skal bíða
- Augnhár: 10 mínútur.
- Augabrúnir: 5-10 mínútur. Þeim mun lengur sem liturinn er látinn bíða, þeim mun sterkari verða áhrifin.
SKREF 4: Tilbúin!
- Fjarlægðu með bómullarskífum og vatni.
Ábendingar og heilræði
- Ef RefectoCil Blonde Brow hefur áður verið notað, styttist tíminn sem liturinn er látinn bíða um 1-5 mínútur; með RefectoCil Eyelash Curl styttist tíminn í 2 mínútur.
- Ofnæmispróf: Við mælum með ofnæmisprófi (próf með ofnæmisplástri) fyrir fyrstu notkun og einnig þegar litun hefur ekki verið framkvæmd í langan tíma.

Aqua, Cetearyl Alcohol, Toluene-2,5-Diamine, m-Aminophenol, Bis-Diglyceryl Polyacyladipate-2, PEG-40 Hydrogenated Castor Oil, Sodium Cetearyl Sulfate, 2,4-Diaminophenoxyethanol, Sodium Laureth Sulfate, CI 77499, CI 77491.