Deep Blue No. 2.1 Dýrindis djúpblátt!

Djúpblátt er sterkur svartblár tónn sem sérstaklega er mælt með fyrir augnhár og fer einstaklega vel með ljósu útliti!

  • Djúpblá augnhár
  • Hægt að blanda við RefectoCil rautt fyrir dökkfjólublátt útlit
  • Kámast ekki og þolir vatn
  • Endist í 6 vikur

SKREF 1: Undirbúningur

  • Fjarlægðu linsur.
  • Hreinsaðu svæðið í kringum augun með olíulausa og augnhárastyrkjandi farðahreinsinum RefectoCil Micellar Eye Make-up Remover.
  • Notaðu RefectoCil saltvatnslausnina til að fjarlægja leifar og tryggja hámarks árangur.
  • Notaðu RefectoCil sílíkonhlífar (Silicone Pads) eða húðverndunarkremið (Skin Protection Cream) og augnhlífabréf (Eye Protection Papers) samkvæmt viðkomandi leiðbeiningum.

SKREF 2: Blandaðu og berðu á

  • Strax áður en þú litar, blandaðu þá 2 cm af lit og 10 dropum af RefectoCil vökvafesti (oxidant liquid) eða 15-20 dropum af RefectoCil kremfesti (oxidant cream) í rjómakennt krem.
  • Berðu þetta síðan á augabrúnirnar og augnhárin.

SKREF 3: Tíminn sem liturinn skal bíða

  • Augnhár: 10 mínútur.
  • Augabrúnir: 5-10 mínútur. Þeim mun lengur sem liturinn er látinn bíða, þeim mun sterkari verða áhrifin.

SKREF 4: Tilbúin!

  • Fjarlægðu með bómullarskífum og vatni.

Ábendingar og heilræði

  • Ef RefectoCil Blonde Brow hefur áður verið notað, styttist tíminn sem liturinn er látinn bíða um 1-5 mínútur; með RefectoCil Eyelash Curl styttist tíminn í 2 mínútur.
  • Ofnæmispróf: Við mælum með ofnæmisprófi (próf með ofnæmisplástri) fyrir fyrstu notkun og einnig þegar litun hefur ekki verið framkvæmd í langan tíma.
Vatn, setearýlalkóhól, bis-díglýserýl pólýasýladípat-2, PEG-40 hert bifurolía, 2,5-díamínótólúen, 2,4-díamínófenoxýetanól, natríum setearýl súlfat, natríum láret súlfat, CI 77007.